25. nóvember 2019 11:09
Jólaverslunin fer í auknum mæli fram innanlands
Innlend kortavelta í verslun jókst um 12% í október frá sama
mánuði í fyrra. Þá jókst netverslun um 53%. Töluverður vöxtur var í veltu fataverslunar en kortavelta í flokknum jókst um tæpar 700 milljónir eða 18% frá október í fyrra. Aðrir flokkar verslunar voru einnig á uppleið í mánuðinum ef tollfrjáls verslun er undanskilin. Sé þessi þróun gagna Rannsóknaseturs verslunarinnar um kortaveltu borin saman við aðrar hagtölur er rökrétt að draga þá ályktun að Íslendingar geri jólainnkaupin nú í auknum mæli hérlendis frekar en erlendis. Þannig fækkaði brottförum Íslendinga um Leifsstöð um 11% frá október í fyrra samkvæmt Ferðamálastofu og kortavelta Íslendinga erlendis lækkaði um 2% á sama tímabili samkvæmt Seðlabanka Íslands.
Talnaefni